Ír.is
Las Fotos
06.11.2007 02:41:32 / Íris

irisbirgis.bloggar.is

 

Ég hef átt margar dagbækur í gegnum æfina.

Sennilega afþví að frá því að ég lærði að skrifa hefur mér þótt mikilvægt að setja niður hugsanir mínar á blað. Var alltaf ofsalega háfleyg og háalvarleg í öllu sem ég skrifaði.. Kannski ekki við öðru að búast af barni sem gat sitið heilu og hálfu dagana á klettasillu og hlustað á náttúruna..

Þær fyrstu voru oftar en ekki skreyttar með myndum af ponyhestum, regnbogum eða fiðrildum -þetta er að vísu nákvæmlega kápan á dagbókinni sem ég ætlaði að byrja að halda þegar ég fór til Hollands þegar ég var 10 ára. Öll tveggja vikna Hollandsförin fór á fyrstu þrjár blaðsíðurnar og síðan ekki söguna meir.

En það fór nú ekki alltaf svo að tré væru höggin til einskis..

Eins vel og þessi dagbók er búin að reynast mér í þessi rétt rúmlega tvö ár þá munu blaðsíðurnar því miður ekki verða fleiri..

Hér eftir er hægt að finna mig á

irisbirgis.bloggar.is

Íris -Takk fyrir mig!


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 00:01:59 / Íris

Jolly old England..

 

...var í einu orði sagt "SuperB"!!

Enda ekki á hverju degi sem maður hittir Hring Frænda í útlöndum! ;)

Hvað þá að hann sé í stuttbuxum, á hjóli og bjóði manni á ólöglega bari! 8)

Eða sefur í "Pod-i"

Og sem betur fer líka ekki í Pod-i

Það er heldur ekki á hverjum degi sem maður fer í Brúðkaup í Sheffield..

Eða er í BESTA félagsskap sem hugsast getur ;)

Það kviknar í Hostelinu manns og maður neyðist til að ráfa um stræti Lundúna með allt sitt hafurtask á náttfötunum ;)

Hittir menn með ABBAþráhyggju sem syngja nafnið á uppáhalds skyndibitanum sínum "Chimmy Chonga" í stað "Chiguitita"

Eða getur hringt heim úr eitt stykki svona...

 

Eða hittir "Helga Seljan" á uppáhalds barnum manns...

...sem endar svo með því að hann og allir hans vinir standa með okkur úti á götu og söngla "Helgi, Helgi.." og klappa í takt..

Ég veit heldur ekki um marga sem drekka "Old Peculier" mjög stíft..

Eða hitta svona menn á BRJÁLuðum Rokkbörum..

But I do know one thing..

The queen sure is Crazy ;)

Íris -"Sing a new song Chimmy Chonga..."


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 00:25:28 / Íris

Er sumarið kom yfir sæinn..

 

 Þetta sumar er búið að vera svo rólegt og notalegt að á margan hátt vildi ég í raun óska þess að það tæki aldrei enda... En þegar svona spennandi tímar eru framundan þá get ég í rauninni ekki beðið um meir.

  • 2.sept: sennilega síðasti dagurinn í annars stórskemmtilegri vinnu
  • 3.sept: pakka niður og fljúga suður (og Magnús á afmæli ;) )
  • 4.sept: Flytja inn í Þingholtsstræti 23, sem mun verða heimili okkar Ingunnar út árið en þess má til gamans geta að þar býr nú einnig enginn annar en Benedikt Erlingsson leikari
  • 5.sept: Flogið út til London með þeim Ingunni og Hildi þar sem við hittum vonandi Þórunni, hressa eftir mánaðar flakk um álfuna. (sem og 7 skota handa Hildi)
  • 7.sept: Farið frá London yfir til Sheffield þar sem ég fer í brúðkaup hjá Sam vini mínum :D
  • svo fá ævintýrin að ráða för fram að heimkomu 12.sept ;)

Niðurtalning er hér með hafin!

Verslunarmannahelgin var alveg sérdeilis prýðileg, eins og hægt er að bæði lesa um og sjá á síðunni hans Gunnars, sem og Gumma reyndar líka. Fór ekki til Eyja í ár, "Þjóðhátíðarbarnið" sjálft( -eins og Stebbi kallar mig), en eins og allir vita þá var hátíðin ekki haldin í þetta skipti...... :$ Þess vegna verða allir að standa saman og mæta að ári! ;)

En Sheffield, we shall meet at last!

Íris -plus one


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 00:50:52 / Íris

20.000?

 

 

Ert það þú??


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 14:33:07 / Íris

upptekna konan

 

Er faaaar to busy til að vera að standa í því að blogga þessa dagana..

Enda módel hér á ferð... Ekki láta ykkur bregða ef þið rekist á myndir af mér á förnum vegi þar sem ég held á dýrindis fylgihlutum frá Gusta Design -Til sölu í Oni á Djúpavogi

 Annars vil ég benda öllum á að við, Gummi Hjálmar, Ásgeir Ævar og ég verðum að spila í Löngubúð Föstudaginn 13. júlí... Allir að taka kvöldið frá.

Þá er það ekki fleira að sinni..

Þotin út í sólina! ;)

Íris -upptekna


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 23:44:53 / Íris

"Good things come to good people"

 

Ég hef alltaf trúað því að maður uppskeri eins og maður sái og 22. afmælisdagurinn minn varð hálfgerður vitnisburður þess.

Sat úti í góða veðrinu sem ég var svo heppin að fá í afmælisgjöf, þegar konan sem við Ingunn leigjum hjá, á Brekkustígnum, hringir. Gerði mig fyrst ansi skelkaða þegar hún fór að ræða það að vera búin að fá nýjan leigjanda sem vildi ólmur vera þar um kyrrt en ekki bara yfir sumarið þar til við kæmum aftur. Var orðin alveg viss um að nú værum við stöllur komnar á götuna... 8|

En nei, svo aldeilis ekki. Konan bauð okkur í staðinn íbúðina sína í Þingholtunum, besta stað í bænum. Mun stærri en Stígurinn góði, tvö svefnherbergi, tvær stofur.. allt miklu flottara, og það á sama pening og við höfðum leigt áður ;)

Of gott til að vera satt?

Ekki furða að 22.maí skuli vera uppáhalds dagurinn minn. Hvert sem ég fór virtust allir muna eftir deginum mínum, sem endaði svo í faðmi (stór)fjölskyldunnar með grillveislu og svo kræsingum þegar líða tók á kvöldið.

Eftirminnilegur dagur í alla staði og ég hafði greinilega ekki þurft að örvænta kvöldið áður...

En að kvöldi 21.maí var ég skriðin upp í rúm eftir að hafa horft á sjónvarpið í letikasti frá því að ég kom heim úr vinnunni. Þegar ég áttaði mig á því að ég yrði að gera eitthvað spes til að muna nú eftir afmælisdeginum mínum. Með það sama var ég því rokin á náttfötunum inn í heitupotta úti í sveit með ipodgræjurnar og símann þar sem ég lá í mestu makindum í heitu vatninu, þegar síminn byrjaði að hamast á miðnætti.. ;)

Og nú er ég 22! ;)

Íris -árinu eldri


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 03:28:40 / Íris

Síðustu klukkutímarnir með Svíþjóð

 

Klukkan er rétt farin að ganga fimm um nótt og við Ingunn sitjum við eldhúsborðið og tölum í stikkorðum á spænsku.

Ég á bara eitt málfræðipróf eftir núna, Ingunn fer í spænskuprófið sitt á morgunn og síðan erum við svo gott sem komnar með fæturnar á sama stað og hugurinn hefur dvalið meir og meir undanfarið.... Hogar, dulce hogar! ;)

Svíurnar mínar sofa vært í stofunni en með hverri mínútunni sem líður, færast endalok dvalar þeirra hér, um sinn, nær og nær. Þori ekki að vekja þær þó mig dauðlangi, nokkuð viss um að þær er að dreyma fallega drauma um Djúpavog og sænska sumarið sem bíður þeirra hinumegin við flugferðina.

Hef sagt það svo oft áður, en það sem er eitt og nánast yfirgefið á þeim stutta lista yfir hluti sem mér líka ekki, er það að kveðja fólk sem mér þykir vænt um...

En því fylgja svosum líka kostir. Búin að looloolooofa að fara í heimsókn til Stockholms fyrr en seinna.. ;)

Þangað til næst, 

Íris


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 15:05:13 / Íris

Andvaka

 

Það var ekki fyrr en tekið var að birta aftur, dagblaðið var komið í bréfalúguna og einn árrisull nágranni var farinn á fætur sem ég loksins sofnaði...

Höfuðið fullt af spurningum sem ég bara á engin svör við, allavega ekki eins og er. Og það sem verra var, að þegar ég loksins náði að loka augunum nægilega lengi og hætta að bilta mér, dreymdi mig svo illa að ég er eiginlega ennþá að jafna mig...

En það þýðir víst ekkert að velta sé upp úr þessu, ætla að hella mér ofan í næstu bók og spænska málfræði. 

þangað til næst,

Íris


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 16:06:05 / Íris

Nýyrði: "Lærdómspásuafsökunarblogg"...

 

Jæja, þá er fyrsta prófið mitt frá og ég held mér hafi nú bara gengið þó nokkuð vel. Ingunn stakk af austur til að dimmitera og skildi mig eftir eina í kotinu. Eina með allar skólabækurnar mínar...:$

 En það varði ekki lengi því Herdís er komin í heimsókn og ætlar að fá að kúra. Ákvað því að líta aðeins upp úr bókunum og rölta með henni niður í bæ í gærkvöld en endist ekkert svaklega lengi og var komin frekar snemma heim, skreið upp í rúm og svaf eins og lítið barn fram að hádegi. Missti þar af leiðandi alveg af æstum múg sem átti leið hjá húsinu mínu undir morgun og reyndi hvað eftir annað að ná sambandi við mig.. ;)

Síðasta miðvikudagkvöld, sátum við Ingunn hérna heima,að hlusta á tónlist og læra -var búin að sitja með bækurnar allan daginn á náttfötunum og ekki svo mikið sem stíga fæti út fyrir hússins dyr. Um miðnætti heyrum við að það kom allt í einu alveg ausandi rigning og með það sama vorum við komnar út á náttfötunum og fórum í langa gönguferð í rigningunni. Fátt meira hressandi en að koma svo inn rennandi blautar og fara aftur að læra ;) En ég er ekki frá því að mér hafi gengið betur í prófinu daginn eftir fyrir vikið ;)

Rölti niður í bæ áðan til að kaupa í matinn og fannst sem snöggvast eins og ég væri stödd í útlöndum. Heitur vindurinn, fólk allstaðar á ferli og götuspilari á horninu... Fékk skyndilega í magann og óskaði þess að ég væri á leiðinni heim af markaðinum í Les Corts en ekki bara 10-11 í Austurstræti... ohh..

jæja... held ég sé bara farin að finna mér einhverjar ástæður fyrir því að sökkva mér ekki ofan í næstu bók en Baroja bíður víst ekki öllu lengur.

Ætla samt, þar sem fólk er orðið svo latt að commenta hjá mér, að setja smá "blast from the past" ykkur til ánægju og yndisauka. Endilega nafngreinið fólkið á myndunum ;)

 Þangað til næst,

Íris -og Baroja


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 01:11:37 / Íris

22. apríl og veðmálið endalausa

Þessi dagur er ekki einungis merkilegur fyrir þær sakir að í dag ( reyndar í gær þar sem klukkan hefur slegið tólf og nýr dagur barið á dyrnar) fagna ég þeim áfanga að vera 21. árs og 11 mánuðum betur, heldur er þessi merkisdagur engu að síður sá dagur sem ég og Þórunn hófum fyrir margt löngu veðmálið mikla.

Skilmálar veðmálsins fólust í því að hvorug okkar mætti láta nammi inn fyrir varir sínar frá og með 22.apríl 2003 og fram að miðnætti á þorláksmessu þess sama árs. Þetta átti að vera upphafið að nammibanni með fríðindum, nammibanni sem virkar, ólíkt þeim sem leyfa manni að borða sælgæti einungis á laugardögum sem valda því að áður en maður veit af er allt í einu kominn laugardagur inn í miðja viku, honum skipt út fyrir aðra daga eða jafnvel allir dagar orðinir laugardagar. :$

Þetta nammibann átti eingöngu að leyfa nammi á á jólum og páskum, sem verður til þess að þegar loksins kemur að þessum stórhátíðum er fólk svo aðframkomið af hungri að það étur yfir sig og vill ekki sjá nammihillurnar fyrr en afmæli frelsarans gengur aftur í garð mörgum, mörgum mánuðum síðar.

Þórunn þraukaði vel fram í sumarmánuðina en gafst upp í enda júli, þegar hvítt Malteasers sem hún hafði keypt á Spáni hafði verið sem þyrnir í hennar augum nægilega lengi og allir múrar féllu.

Jól og páskar komu og fóru og þörfin fyrir að borða nammi var hvergi sjáanleg..

Nú eru liðin 4 ár og ég er ennþá í nammibanninu. Veðmálinu sem reyndist þegar betur var að gáð ekki hafa verið veðjað upp á neitt....8| En eitt er víst að ég er búin að vera of lengi og er of þrjósk til að hætta núna.

Þakka bara guði fyrir allt dulbúna nammið sem rambað hefur í kexhillur verslananna! ;)

Íris -Sugarfree...


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 16:28:37 / Íris

Ég lifi í draumi...

 

Ahh... er í skýjunum þar sem ég skilaði síðasta verkefninu mínu á þessari önn núna laust eftir hádegi í dag! ;) Jeyj..!!

Það var reyndar ekki áreynslulaust þar sem ég hef núna ekki svo mikið sem lokað augunum í hart nær einn og hálfan sólarhring 8|

Fórum samt út að borða á Ítalíu til að fagna áfanganum og góða veðrinu ;)

Vorum svo að slæpast í Eymundsson þegar leigusalinn okkar hringir og spyr hvort við höfum ekki áhuga að leigja íbúðina aftur næsta haust.. Þ.e. að hún reddi einhverjum sem tekur hana í sumar en við fáum hana aftur í haust... !! ;) Erum að skoða málið og erum held ég bara nokkuð jákvæðar eenda verður pínusárt að yfirgefa Brekkustíginn for good þegar þar að kemur, fyrr eða síðar...

Enda ekki allir svo heppnir að búa í íbúðinni beint á móti Sigrúnu Eðvalds og fá að heyra undurfagra fiðlutóna hennar sér að kostnaðarlausu. Við erum nú reyndar búnar að borga henni smá til baka, reyndar ekki í sömu mynt, þar sem Singstar partýin okkar voru líklega ekki af sama "caliberi" og heimsklassafiðluleikurinn hennar -nema þegar Hildur kom í heimsókn auðvitað ;)

Vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið um daginn þegar ég kom heim um hábjartan dag og konan var að æfa einhver ægileg Hitchcock stef.. Hafði ekki hugmynd um hvernig ég átti að vera og fann skyndilega fyrir undarlegri löngun til að hlaupa upp stiga 8|

En hér er ég nú, klukkan orðin vel gengin tvö um nótt og ég nálgast óðfluga tvo sólarhringi..

Og ég er ennþá vakandi...

En það er ekkert sem Herra Darcy reddar ekki..  og svo draumar um Barcelona..

 
Íris -ZZzzZZzzzZZZzzz

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 10:10:28 / Íris

Lífið í dýrðinni..

 

Páskarnir voru æðislegir

Ekkert nema góður matur, frábært verður, góður félagsskapur, rólegheit og almenn hamingja yfir því að vera heima í dýrðinni..

Fór í matarboð hjá svíunum í eðal lax, afmæli hjá Birni Hafþóri bæjarstjóra og tók  snúning við undirleik danshljómsveitar Friðjóns -kokkurinn klikkar ekki ;), kúrði með Ísak ofurhetju og dúllaði mér með Vigdísi og Ríkey, fjölskyldudinnerar, gönguferðir, sumarbústaðaferð og Hetjudjamm (get ekki sagt ég hafi saknað Hetjunnar mikið samt þrátt fyrir að hafa sjaldan dansað jafn mikið þar ;) )

Albesti partur páskanna var þó án nokkurs vafa síðasta sunnudagskvöld eftir sumarbústaðaferðina.

Var ein heima svo ég bauð Svíunum mínum í síðbúinn kvöldmat... Búnar að bíða síðan þær komu síðast eftir því að ég eldaði fyrir þær ;), Vorum rétt nýbúnar að borða þegar við fréttum að allir væru á leiðinni inneftir í pottana (fyrir þá sem ekki vita þá fannst 40 gráðu heitt vatn rétt fyrir utan bæinn sem bara fossar endalaust upp úr jörðinni)

Lágum í pottunum í næstum 3 klukkutíma, í myrkrinu með ljómann af einu friðarkerti og svo bara stjörnubjörtum himninum, spjölluðum og horfðum á stjörnurnar. Alltof, alltof, alltof notalegt.. Ohh...

Get ekki beðið eftir sumrinu....

Hasta pronto Djúpivogur!

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 05:05:45 / Íris

Þrátt fyrir...

 

....að dagarnir á Stígnum hjá okkur Ingunni séu ósköp notalegir kemst ég bara ekki hjá því að telja dagana, klukkustundirnar og mínúturnar þangað til ég kemst heim um helgina..

 Það og hlusta á Someone like you með Van Morrison..

Íris


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 22:07:09 / Íris

"Hlustaðu á regnið, hlustaðu það fellur þétt..."

 

Það er á svona dögum sem mér er alveg sama þó ég sé föst inni að læra allan daginn... Náttföt, nýbökuð kaka, sængin mín og ausandi rigning fyrir utan gluggan! Gerist ekki öllu betra ;)

Hið fullkomna væri samt að geta skotist út frá lærdómnum í gönguferð í aaauuusandi rigningunni sem kemur annað slagið. En þessi fyrirlestur minn leyfir víst ekkert svoleiðis, allavega ekki að svo stöddu! Spurning samt seinna í nótt, þar sem veðrið á víst bara að versna.... og geta svo komið aftur inn og fengið sér heitt kakó um leið og maður skríður aftur undir sæng! Ahhh... ;)

Íris y la lluvia


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 02:04:42 / Íris

Thinking back, thinking of you...

 

Sólin undanfarið og enduruppgvötun á laginu Dakota með Stereophonics hefur ákveðin árhif á mig þessa dagana og rótar upp allskyns tilfinningum.. 

Mana alla til að fara á Radioblogclub.com og hlusta á það á meðan þeir lesa rest!

Þetta lag kallar fram svo margar skemmtilegar minningar og við það eitt að hlusta á það langar mig að stinga mér í sjóinn, horfa á sólina setjast, standa á fjallstoppum, synda í ám, hlaupa, liggja í sólbaði, borða ís, syngja hástöfum, keyra hratt, finna lyktina af nýslegnu grasi, sofa í tjaldi, sitja við varðeld, fara í vatnsslag, vera í gítarpartý, standa úti á söndum og horfa á öldurnar þegar þær brotna, vera úti alla nóttina, dansa, fara í fjallgöngur, vera skotin og fá fiðrildi í magann, horfa á stjörnurnar, fara í roadtrip, sulla í sjónum, vera berfætt, horfa á sólarupprásina,...

Stefni á það að gera allt þetta og miklu meira til sumarið 2007!

En ég er ein heima í kvöld og ætla að því tilefni að fara út í gönguferð um leið og ég er búin að læra, koma svo heim og fara í bað, fara í náttfötin, vefja mig inn í sængurnar mínar og horfa á eitthvað væmið...

Íris -so take a look at me now...


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8